Jæja Gísli marteinn. Sanna sig núna og taka upp sópinn og laga stígana í Breiðholtinu ekki seinna en STRAX!


Við ætluðum út á línuskauta og stelpan okkar á hlaupahjólið um göngustíga Breiðholtsins okkar, í góða veðrinu um Páskana.   Það var hreint ómögulegt.

Sandbornir og hálf ónýtir og úr sér gengnir göngustígarnir minna meira á götur Reykjavíkur kringum 1900 og hreint ómögulegt að stunda þar sport, leiki eða notast við vistvænar samgöngur að neinu leiti svo vel sé. 

Borg fyrir fólk, ekki satt Gísli Marteinn? Drífa sig af stað nú með hækkandi Sól og gera hverfið okkar vistlegt fyrir sumarið.

brei�holts g�ngut�r 111 163

 

 

 

 

 Svo er krotið að kæfa

allt hér í Breiðholtinu.

 

  brei�holts g�ngut�r 111 165

 

 

 

 

 

 Lýsandi fyrir ástandið.

 

 brei�holts g�ngut�r 111 181

 

 

 

 

 

Töff. Ekki satt. 

 

brei�holts g�ngut�r 111 222

 

 

 

 

 

Smekkleg og góð skilaboð fyrir börnin okkar.brei�holts g�ngut�r 111 201

 

 

 

 

 

 

 

 brei�holts g�ngut�r 111 219

 

 

 

 

 Betri stíga, takk fyrir!

 

 

Það er komið sumar! 


Æi hvað þetta verður nú skrítið...

 

Í ljósi umræðna á þingi.

 

Að tala við Prestuna... /prestinn)

Að tala við vörðuna... /vörðinn

Að tala við ráðgjöfuna... /ráðgjafann

Að tala við nudduna... /nuddarann

Að tala við kennuna... /kennarann

 Verður þetta svona einhvernveginn? 


Ertu að byggja?

Vantar þig steypu?

 

HLUSTAÐU ÞÁ DAG B. EGGERTSSON,

í Silfrinu núna síðast.


MUNIÐ...

...eftir stefnuljósunum.  Margir gefa þau allt of seint, eða í miðri beygju.

 Akstur með hönskum á 30 km. hraða á vegum með 60 - 80 km hámarki er ekki öruggur akstur. Takið  það til ykkar sem eiga!

Passið þið ykkur á vöruflutninga bílunum. Þeir hafa mun lengri stöðvunarvegalengd og eru stundum mjög þungir. Sumir pæla ekkert í þessu og vaða fyrir þá við gatnamót. Hættulegt. 

 


Leikskólauppfærslan á leikritinu, Vér mótmælum allir!

Mikið var það hreinlega fyndið að horfa á Svandísi Svavarsdóttir og Dag B Eggertsson voða uppblásin og stolt yfir þessum heimskulegu frammíköllum og skrílslátum hjá þessum illa upp öldnum krökkum sem smalað var í ráðhúsið til þess að mótmæla því sem það skilur ekki, með slagorðum sem það gerir sér ekki einu sinni grein fyrir að gengur ekki upp.

Og svo fr. Sverrisdóttir svo ánægð með alla krakkana sem alla jafna kjósa ekki, nema sumir vinstri græna því þeir vita ekki betur. Halda að þá séu þeir að koma sjálfstæðisflokknum frá, því þeir séu svo vondir. En halda svo engu vatni í rökræðu um stjórnmál eða stjórnmálaflokka.

Svo kemur Kallinn hann Dagur í pontu og temur lýðinn með tækisfærissinnuðu og slepjulegu hjali um lýðræði. Fyndinn kall. Æ,æ. Svo fór hann næstum að gráta þegar hann afhenti lyklana. Montið og stoltið yfir valda statusnum farið. Orðlaus og barnalegur!

Aumingjans maðurinn sem sagði að hann væri nú ekki þarna vegna valdagræðgi. Það var og! 

Ég man ekki eftir því að hafa heyrt neinn í þessum hópi sem er að fara frá, tala um kosningar í síðasta  "valdaráni" eins og það heitir nú. Nei þá voru menn þjóðhetjur að bjarga borginni og Orkuveitunni. Samt fékk Glanni að vera þar áfram að reyna að gera kosninga stjórann sinn, og fleiri vini, ríka. Spilling? Föt fyrir MILLJÓN?! Spilling??

Núna í þessu dæmi eru menn og konur hryðjuverkamenn.

Kannist þið við aðferðina?

Og Glanni farinn. Og allir gráta. Aftur.


Ólympíuleikar æsifréttamanna

Mikið voðalega reyna menn að míga á nýja Borgarstjórann okkar á visir.is eða bara á 365 yfir höfuð.  Að hlusta á þetta æsifrétta hádegisviðtal. Eru allir fréttamenn alltaf að reyna að ná í gullið í ólympíuleikum fréttamanna í æsifréttum?

Það er allt orðið í æsifrétta stíl. Svo mikið að fréttamenn eru ekki einu sinni tilbúnir með spurningarnar. Og spyrja svo alltaf sömu spurningarinnar aftur og aftur eins og krakkar í frétta leik.

Hvað er svo þessi jón magnússon að vilja upp á dekk? 


Illa byggða spilaborgin hrunin,

Til hamingju Reykjavík!!!

Glanni loksins í réttu ljósi!!!

Nema hvað, að það má náttúrulega ekki eyðileggja alla ímynda vinnuna sem búið er að leggja í rónann, segja forkólfarnir. Það má ekki segja frá svona löguðu opinberlega. Það eiga allir að þegja, að sjálfsögðu. 

Nú er hann kominn á götuna, ræfillinn. Hver ætli gefi honum heitt kakó í öllum kuldanum þarna úti, og klapp á bakið???


TATARA TAAA!!!! ....einu sinni enn

Nú kemur Borgarstjórinn okkar í líki Batmans. Búningurinn bara ekki eins flottur!

Að bjarga húsunum við Laugaveg. Og gera hugmyndir annara að sínum. Þvílik móða! Þarna kom tækifærissinninn bersýnilega fram. Að vera maður fólksins á kostnað lágkúru eins og ölmusan til kennaranna. 

Næstum allt sem hann segir og gerir sem Borgarstjóri í viðtölum er móða og er falskt á að hlíða.  En þannig hljómar nú allur nýi borgarstjóra meirihlutinn. 

Þannig að það er þá kannski ekki skrítið að honum finnist cool að vera kjánalegur. Enda lítur hann mikið upp til Glanna vinar síns og vill vera eins og hann. 

Hann bara veit ekki að Glanni er líka glataður og falskur. 


Stuðningur í verki.

Hvað er þetta með Hreyfil sem studdi gott ef ekki krabbameinsfélagið í verki, með því að setja Bleiku slaufuna í staðinn fyrir TAXI merkið á bílana sína. 

Gott mál. En svo sér maður hvern leigubílstjórann á fætur öðrum stíf púandi tópak af öllum típum, inni í bílnum og bara með smá rifu á glugganum. Væntanlega til að verða ekki of kalt.

Fyrir utan vondu lyktina og loftið í bílnum þá bara hélt ég að þetta væri bannað.

Sem er kannski annað mál.

Það er allavega þversögn í þessu.

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband